GudrunDavids.com
 Success is 2% inspiration and 98% perspirationThomas Edison

Myndaalbúm

2010
 Júlí (3)
 Júní (9)
 Maí (10)
 Apríl (14)
 Mars (11)
 Febrúar (14)
 Janúar (11)

2009
 Desember (8)
 Nóvember (5)
 Október (5)
 September (9)
 Ágúst (9)
 Júlí (13)
 Júní (16)
 Maí (8)
 Apríl (4)
 Mars (7)
 Febrúar (6)
 Janúar (4)

2008
 Desember (7)
 Nóvember (3)
 Október (7)
 September (6)
 Ágúst (8)
 Júlí (3)
 Júní (11)
 Maí (7)
 Apríl (11)
 Mars (9)
 Febrúar (14)
 Janúar (12)

2007
 Desember (9)
 Nóvember (16)
 Október (13)
 September (11)
 Ágúst (7)
 Júlí (8)
 Júní (15)
 Maí (8)
 Apríl (7)
 Mars (6)
 Febrúar (10)
 Janúar (10)

2006
 Desember (9)
 Nóvember (14)
 Október (16)
 September (16)
 Ágúst (15)
 Júlí (10)
 Júní (9)
 Maí (11)
 Apríl (10)
 Mars (10)
 Febrúar (11)
 Janúar (8)

2005
 Desember (10)
 Nóvember (10)
 Október (11)
 September (10)
 Ágúst (6)
 Júlí (12)
 Júní (9)
 Maí (13)
 Apríl (5)
 Mars (9)
 Febrúar (11)
 Janúar (11)

2004
 Desember (1)
Hvaðan er fólkið sem heimsækir mig

 

Heiður 14 mánaða
29. júlí 2010

Það er komið rúmlega 1.ár síðan Heiður var skírð, þann 20.júlí 2009.
 
Skírn Heiðar 2009

Athugasemdir (0)

Litlu búkonurnar í Grundarkoti
16. júlí 2010

Þær verða krúttlegri með hverri myndatökunni
Heiður 13 mánaða, Erla Ýr 9 mánaða, og Anna Birta 12 mánaða
 

Athugasemdir (2)

Skaftafell
10. júlí 2010

Fjölskyldan komin heim eftir viku útileguferð sem spannaði frá Húsafelli til Skaftafells. Ferðuðumst í fylgd tveggja annarra fjölskyldna: Maríu og Ívars + 6, og Ásgerðar og Sigurgeirs + 1. Vorum samanlagt 14 manns með tvö sett af börnum, lítil frá 5 mánaða til 5 ára og 3 unglinga, + einn tveggja mánaða Labrador hvolp sem hétir Askur. Er gáttuð á úthaldinu okkar því þetta höfum við aldrei gert áður. Börnin sváfu eins og englar í pokunum sínum, og léku sér úti í rigningunni á daginn. Lærðum mikið hvað var nauðsynlegt í svona ferð, t.d. koppur, og hvað var óþarfi t.d. regnhlífakerra.
Já við komum heim reynslunni ríkari að hafa flægst á milli landshluta með lágmarksútbúnað sem þó þurfti að innihalda allt frá sólarvarnar og bikinís til snjógalla og rafmagnshitara.

Besti og skemmtilegast dagurinn var fimmtudagurinn í Skaftafelli. Við Njörður vöknuðum kl. 6:30 með Heiði og fórum í klukkustundar gönguferð í glampandi sólskini að Skaftafellsjökli. Ohh dásamlegt að labba léttklæddur í þessu óraunverulega landslagi. Sama dag fórum við í tvær aðrar gönguferðir, upp að Hundafossi og svo heljarinnar ferð með öll börnin á bakinu upp að Svartafossi þar sem myndin hér að neðan er tekin. Já það er ekki ofsögum sagt að Ísland er fallegast í heimi.

 

Athugasemdir (3)

Dagdraumaherbergi stelpnanna
28. júní 2010

Ef ég bara gæti, þá myndi ég útfæra herbergi fyrir Dagmar og Heiði svona.... vá hvað þetta er sætt.

www.lucyandcompany.com
 

Athugasemdir (4)

Ævintýraheiður
28. júní 2010

Dagarnir hjá Heiði eiga sín litlu ævintýri.

Í gær fór hún í fyrsta skipti út að hjóla, komin með nýjan hjálm og allt.
Svo er alltaf hápunktur þegar hún klifrar úr sófanum og upp í gluggakistu. Þar situr hún alsæl eins og drottning í ríki sínu með útsýni yfir alla stofuna.

 

Athugasemdir (4)

Hlýtt sumarkvöld
25. júní 2010

Það var 20° hiti í gærkvöldi þegar við skutumst í Nauthólsvíkina eftir kvöldmat. Kipptum sundfötum og náttgalla með fyrir börnene og nutum hlýrrar kvöldgolu og sólar á fámennri ströndinni því það voru allir farnir heim.

Yndislegur staður í Reykjavík og Heiður naut þess vel að leika sér í ylpollinum.
 

Athugasemdir (0)

Myndir úr júní
24. júní 2010

Ég er búin að dúndra inn myndum á netalbúmið mitt.
Þær eru teknar á nýju flottu myndavélina okkar og dísus kr. jósepsson hvað þær eru miklu skýrari en á þá gömlu.
Myndirnar eru frá 17. júní gleði í Reykjanesbæ, 18. júní gleði í Húsdýragarðinum og 19. júní gleði í Kvennahlaupinu, og svo smá gleði úti í garði í morgun.

 
Duglegar í Kvennahlaupinu!

Athugasemdir (0)

Grátur Heiðar
22. júní 2010

Heiður er komin með nýja tegund af grát til að notast við þegar hún rumskar á kvöldin eftir að hafa verið sett í bælið.

Hún hefur hingað til notað höggormstaktinn, sem er nokkurn veginn svona "wehh wehh, HHHgggghh, HHHHggghhh, wehh wehh.

Þessi nýji er greinilega uppfærsla enda manneskjan alveg að verða 13 mánaða og eins gott að fara að prufa nýja hluti..

Nýji hljómar: "uwhhhh uwhhh, SKERANDI ÖSKUR - ÆTLAR ENGINN Í ANDSKOTANUM AÐ HUGGA MIG EÐA HVAÐ!!!!! , uwhhh uwhh", þetta er endurtekið ca 4-5 x þangað til hún dettur aftur út sofandi.
 

Athugasemdir (0)

Ég á afmæli!
16. júní 2010

Enn á ný á ég afmæli...finnst nú eiginlega nóg komið hvað þau séu orðin mörg og hvað það er hrikalega stutt síðan síðasta var. En alltaf jafn gaman ....Áfram 16. júní!!
 

Athugasemdir (72)

11. júní 2010
12. júní 2010

5 ára brúðkaupsafmæli. Í ár var þemað tré og var Njörður það sniðugur að sjá um gjafir bæði frá honum til mín og frá mér til hans þegar hann keypti tvo risastóra tré kertastjaka..þ.a. annar þeirra frá frá honum og hinn var frá mér .

Við fórum út að borða á Tapas Barnum sem kom mikið á óvart. Bjóst ekki við hversu frábær matur var þarna og gaman að borða. Pöntuðum tilbúna samsetningu á mat og hver rétturinn var öðrum ljúffengari. Það var líka gaman að uppgötva að við vorum eina parið á staðnum sem héldumst í hendur á milli máltíða, svolítið annað en parið sem sat á móti okkur sem skiptist á að fikta í gemsanum.

Til hamingju við með fyrsta stórbrúðkaupsafmælið
 

Athugasemdir (3)